Sóknaráætlun Vesturlands 2015-2019
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir kynningarfundi um Sóknaráætlun Vesturlands í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði miðvikudaginn 18 mars kl.16.30
Á fundunum verður kynnt ný Sóknaráætlun Vesturlands. Í tengslum við sóknaráætlun þarf að móta framtíðarsýn fyrir Vesturland, skilgreina átaksverkefni og stofna Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Sjóðurinn mun úthluta styrkjum til nýsköpunar í atvinnulífi og menningarmála og kemur í stað Vaxtarsamnings Vesturlands og Menningarsamnings Vesturlands.
Allir velkomnir
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi