Þverá

Þverá er austan við Dalsmynni norðan þjóðvegar sunnan undir fjallgarðinum. Jörðin er grösug og hefur alltaf verið talin ágæt bújörð. Slægjur voru góðar svo og vetrarbeit og sumarbeit góð í fjallinu ofan við túnið. Jörðin er fremur hæg til búskapar Heimildir: Byggðir Snæfellsness 1977 bls 279 Loftmynd Mats.is Ábúendur: Halldór Kristján Jónsson og Áslaug Sólveig Guðmundsdóttir

Ytri-Rauðamelur

Ytri-Rauðimelur er með stærstu jörðum á Snæfellsnesi. Þetta er landnámsjörð Sel-Þóris og hefur löngum verið búið vel. Jörðin á land að austan úr Fauskósi við Haffjarðará upp með ánni í Höfðanes og þaðan eftir gamla Flatnaárfarvegi og síðan Flatnaá móti Höfða og síðan Sátudalsá. Sumarhagar eru miklir en slægjur dreifðar. Jörðin er kirkjustaður frá 1570. […]

Ytra-Lágafell

Landið liggur norðan við Borgarholt en austan Lágafellslands. Það er sambland af brokflóum, kjarlendisásum og fjalllendi í Hofsstaðarhálsi er nær norður að Baulárvallavatni. Landið er mjög stórt og fjölbreytilegt að gerð. Nokkuð er af þurrum móum og melum, sem er gott ræktunarlandí miðju landi norðan þjóðvegar. Þar er skjólgott mjög og veðrasælt. Fjárland er gott. […]

Vegamót

Veitinga og verslunarstaður í landi Dals. Stofnað 1933 af Jóni Sigurgeirssyni frá Hömluholtum. Jón Sigurgeirsson og Steinunn Þórðardóttir hófu veitingarekstur fyrir 1935 á sumrum, fyrst í tjaldi en síðar byggði Jón timburskúr, sem hann notaði um skeið. Enn fremur voru oft dansleikir á Vegamótum, sem Jón efndi til og fékk þá stundum fræga skemmtikrafta úr […]

Söðulsholt

Söðulsholt er fyrsta býli vestan Núpár, sunnan þjóðvegar. Húsin eru í hvarfi frá þjóðvegi undir klettaborgum. Landið liggur meðfram Núpá inn í Núpudal. Vetrarbeit er góð og niðurlandið er grösugt og gott til ræktunar. Árið 1998 kaupir núverandi eigandi, Einar Ólafsson, jörðina og hefur stundað þar hrossarækt, skógrækt, línrækt og nú síðast byggrækt. Hestamiðstöðin Söðulsholt […]

Syðra-Skógarnes

Jörðin liggur neðan Miklaholts að sjó suðaustast í Miklaholtshrepp. Meðfram sjónum eru þurrir bakkar og gott ræktunarland og beitiland. Land jarðarinnar er fremur stórt. Sjóbúðir voru fyrr á árum í Skógarneshólma. 1712 voru þar 7 íbúðir. Í hólmanum var og verslunarstaður alllengi. Sjást þar enn steyptir grunnar verslunar og íbúðarhúsa. Þar rak Tang og Riis […]

Syðra-Lágafell 1-2

Jörðin liggur sunnan í Lágafellshyrnu, vestan Hofstaða. Sunnan Ytra-Lágafells. Sumt af landinu eru mýrar með klapparholtum en fjalllendi sunnan í hyrnunni. Landið er lítið og heldur erfitt til ræktunar. Heimildir Byggðir Snæfellsness 1977 bls 312 Ábúendur: Syðra-Lágafell 1 Fór í eyði 1967 Á Syðra-Lágafelli 2 búa Áslaug Sigvaldadóttir, Þórður Runólfsson og Helga Þórðardóttir

Svarfhóll

Jörðin liggur austan Kleifárvalla að Laxá neðan frá Grafarlandi og upp að gili, sem kemur úr Hafursfelli að austan, Núpugili. Undirlendið er mýri og er að nokkru austan mæðuveikisgirðingar sem liggur frá Skógarnesi í Álftafjörð. Fjalllendið er sæmilegt sumarland. Lítilsháttar veiði er í Laxá. Í dag er sumarbústaðarbyggði í landi Svarfhóls Heimildir: Byggðir Snæfellsness 1977 […]

Straumfjarðartunga

Jörðin liggur milli ánna Grímsár að austan og Straumfjarðarár að vestan. Að norðan eru landamerki við þjóðveginn á Langholti. Landið er blautt mýrlendi með klapparásum. Móar eru sunnanvert í Langholti, auðveldir til ræktunar. Annað ræktunarland þarfnast framræslu. Landið er talið gott sauðbeitarland, en fremur lítið. Heimildir: Byggðir Snæfellsness 1977 bls 287 Loftmynd Mats.is
Bassastaðir og Snæfellsjökull

Stórikrókur 5

Stórikrókur í landi Miðhrauns 2 er deiliskipulagt svæði fyrir 8 lóðir ýmist ætlaðar undir frístunda- og/ eða íbúðarhús. Svæðið er í eigu 8  barna Guðmundar Þórðarsonar og Önnu Sesselju Þórðardóttur frá Miðhrauni. Hafist var handa við byggingu íbúðarhúss að Stórakróki 5 í júní 2009 og lauk byggingu ári síðar. Í júlí 2010 flutti svo Þórður […]