Ágætu íbúar.
Nýverið tók sveitarstjórn þá ákvörðun að samhliða sveitarstjórnarkosningunum myndi vera gerð skoðunarkönnun meðal íbúa um hver vilji íbúa væri ef til sameiningaviðræðna kæmi við önnur sveitarfélög. Þetta virkar þannig að þið setjið einn kross á seðilinn, í reitinn fyrir framan nafnið sem þið mynduð vilja sjá gerast. Vona að þið sjáið ykkur fært að taka þátt í þessari könnun.
Kjörseðill vegna sveitarstjórnarkosninganna er einnig hér en eins og þið þekkið á að setja 5 aðalmenn og 5 til vara. Ég hef fengið fyrirspurnir um það hvort það ógildi seðilinn ef það eru ekki 10 nöfn á honum t.d. eitt nafn eða 7. Þetta virkar þannig að þó þið setið eitt upp í 10 þá gildir það, sem sagt ef 1 nafn er á seðlinum er hann gildur.
10. maí 2022
Ekkert Kjartansson
oddviti

