Hér með er boðað til hreppsnefndarfundar miðvikudaginn 12. október 2022 að Breiðabliki kl. 20:00.
Dagskrá:
- Hitaveita Eyja- og Miklaholtshrepps (HEM)
- Undirbúningur við gerð fjárhagsáætlunar 2023
- Bréf Innviðaráðuneytis vegna kvörtunar/ábendingar um stjórnsýslu Eyja- og Miklaholtshrepps, dagsett 14. september 2022
- Starf oddvita
- Kjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa
- Fundargerð 913. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Fundargerð Fulltrúaráðsfundar FVA
10. október 2022
Sigurbjörg Ottesen
Hjarðarfelli