Eyja- og Miklaholtshreppur hyggst endurnýja búnað sveitarfélagsins sem notaður hefur verið til söfnunar á landbúnaðarplasti, en sveitarfélagið lagði á sínum tíma til gáma í þessu skyni. Nú er komið að endurnýjun gámanna og hefur sveitarfélagið skoðað aðrar lausnir sem eru hagkvæmari, umhverfisvænni, einkum í því skyni að minnka líkur á að plast fjúki úr gámum og geti betur stuðlað að mögulegri endurvinnslu. Gámarnir verða því aflagðir til plastsöfnunar og einungis verður boðið uppá að sækja plastkubba.

Í ljósi framangreinds ætlar sveitarfélagið að fjárfesta í plastpressum sem leysa munu gámana af hólmi. Þeir rekstraraðilar sem í dag eru með plastgáma eiga þess kost að fá plastpressu frá sveitarfélaginu. Aðilar í atvinnurekstri í sveitarfélaginu sem safna þurfa plasti hafa sömu möguleika á að fá plastpressu en aldrei fleiri en eina á hvern rekstraraðila.

Til að fá slíka plastpressu frá sveitarfélaginu þurfa viðkomandi aðilar að undirrita samning, fyrir pöntun plastpressunnar, sem inniheldur eftirfarandi skilmála:

• Plastpressurnar verða í eigu sveitarfélagsins.

• Viðtakandi plastpressu skal annast uppsetningu og viðhald hennar án endurgjalds frá sveitarfélaginu.

• Skilyrði er að plastpressan verði staðsett innandyra árið um kring.

Til að sækja um pressu skal senda tölvupóst þess efnis til oddvita, þar sem að kemur fram nafn rekstraraðila, kennitala og VSK-númer.

Sigurbjörg Ottesen,

oddviti@eyjaogmikla.is