Deiliskipulag í Eyja- og Miklaholtshreppi

Stórikrókur – íbúðarbyggð

Hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps samþykkti á fundi sínum 3. desember, 2020 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Stórakróks í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var hún auglýst 19. desember, 2020. Vegna formgalla er hún nú auglýst að nýju.

Helstu breytingar eru að öll húsin verða heilsárshús, leyfðar verða manir og hleðslur til skjólmyndunar og byggingarreitur nr. 6 er stækkaður. Auk þess eru breytingar gerðar á byggingarskilmálum er varða heildargrunnflöt bygginga, nýtingarhlutfall, gróðurhús og sólpalla, byggingarefni, þakhalla, mænisstefnu, hæð o.fl.

Tillagan verður til sýnis á heimasíðu sveitarfélagsins www.eyjaogmikla.is og í félagsheimilinu Breiðabliki. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 29. júní, 2022 og skulu þær sendar á netfangið skipulag.eyjaogmikla@gmail.com.

Breiðablik, 10. júní, 2022.

Kristín Þorleifsdóttir, skipulagsfulltrúi