Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) staðfesti í dag, laugardaginn 27. september 2025, umsókn Íslands um að gera Snæfellsnes að vistvangi. Er þetta fyrsta svæðið á Íslandi sem hlýtur þessa alþjóðlegu viðurkenningu.

Hugtakið vistvangur er íslenskt nýyrði yfir hugtakið Biosphere Reserve, en þau svæði eru viðurkennd af MAB-áætlun UNESCO (Man and the Biosphere Programme).
Vistvangur nýtir náttúru- og félagsvísindi sem grunn til að auka lífsgæði íbúa og stuðla að sjálfbærri þróun, með farsælu samspili umhverfis, mannlífs og menningar. 

Snæfellsnes hefur lengi verið þekkt fyrir öflugt samstarf, ríka umhverfisvitund og sterka tengingu íbúa við náttúruna. Snæfellsnes hefur m.a. áunnið sér alþjóðlega umhverfisvottun EarthCheck í yfir 20 ár. Sveitarfélögin hafa markað skýra stefnu um sameiginlegar auðlindir sínar og sóknarfæri í Svæðisskipulagi Snæfellsness 2014-2026. Svæðisgarðurinn Snæfellsnes hefur frá stofnun, árið 2014, byggt upp farsælt samstarf sveitarfélaga, félagasamtaka, stofnana, atvinnulífs og íbúa. Í starfsemi og verkefnum Svæðisgarðsins er lögð áhersla á að grunnur verðmætasköpunar og ímyndar byggi á náttúru- og menningararfi svæðisins. Áhersla Svæðisgarðsins á samstarf ólíkra hópa samfélagsins rímar vel við grunnviðmið UNESCO vistvanganna. 

Á Snæfellsnesi er einnig að finna Snæfellsjökulsþjóðgarð, sem stofnaður var 2001 að áeggjan heimamanna. Landsvæði þjóðgarðsins verður kjarnasvæði í vistvanginum á Snæfellsnesi og eru þjóðgarðurinn og Svæðisgarðurinn Snæfellsnes því samstarfsaðilar í verkefninu.

Umsóknarferlið

Að frumkvæði sveitarfélaganna á Snæfellsnesi var hafin skoðun á því árið 2020, hvað fælist í aðild að UNESCO vistvangi. Niðurstaða þeirrar vinnu var að Snæfellsnes félli vel að þeim viðmiðum sem UNESCO vistvangar setja. Með því að gerast vistvangur fengi Snæfellsnes aðgang að dýrmætri þekkingu og reynslu annarra slíkra svæða á því hvernig hægt er að flétta sjálfbæra þróun, þekkingu á átthögum, umhverfi og menningu við markvissa uppbyggingu atvinnulífs. Auk þess fælist í því aðild að „vörumerki” UNESCO, sem er eitt það þekktasta í heiminum. Í framhaldinu var unnið að gerð umsóknar á vegum stýrihóps sem skipaður var af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undir stjórn fulltrúa Snæfellinga, og var henni skilað í september 2024.

Ísland nú hluti af alþjóðlegu neti vistvanga 

Alþjóðlegt net vistvanga í heiminum nær til 759 svæða í 136 löndum, þar af 25 sem liggja á milli landa. Þessi svæði ná yfir meira en 5% af yfirborði jarðar og þar búa um 300 milljón manns. Vistvanga má finna á hinum Norðurlöndunum, flestir þeirra eru í Svíþjóð. 

„Aðild að vistvangsverkefni UNESCO er viðurkenning fyrir Ísland í heild og eflir bæði ímynd og aðdráttarafl Íslands og Snæfellsness. Með tilkomu vistvangs er opnað á leiðir til að nýta reynslu og þekkingu annarra vistvanga víða um heim þar sem sjálfbærni, nýsköpun og samfélagsuppbygging fara saman. Verkefnið er afurð farsællar samvinnu allra aðila sem að því stóðu og eflir enn frekar tengsl Snæfellsjökulsþjóðgarðs við nærsvæðin,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.  

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, tekur í sama streng: „Þessi viðurkenning gefur fræðslu, rannsóknum og nýsköpun á sviði auðlindanýtingar og byggðaþróunar byr undir báða vængi. Við höfum séð dæmi um að MAB-tilnefning hafi aukið verulega rannsóknir og eflt vísindastarf innan svæðisins, svo sem í Nordhordland í Noregi, en slík vinna er undirstaða framfara.“  

„Með staðfestingu UNESCO í dag er varpað ljósi á áralangt frumkvöðlastarf Snæfellinga í umhverfis- og samfélagsmálum, sem og þau nýju tækifæri sem samfélaginu bjóðast nú gegnum alþjóðlegt samstarf af þessari stærðargráðu. Viðurkenningin, sem í tilnefningunni felst, markar eitt stærsta skrefið í þeirri vegferð sem sveitarfélög, stofnanir, atvinnulíf og félagasamtök á Snæfellsnesi hafa staðið saman að í a.m.k. þrjá áratugi – vegferð sem byggir á samvinnu um sjálfbærni, vernd og nýtingu náttúruauðlinda í sátt við samfélagið. Það er heiður að fá tækifæri til að vera fyrirmynd annarra svæða, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi,” segir Björg Ágústsdóttir, formaður stjórnar Svæðisgarðsins Snæfellsness.