Foreldrar 15-17 ára barna sem hafa rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi eru minntir á að skila þarf inn nýrri umsókn í upphafi skólaárs. Umsóknareyðublað er hægt að nálgast inn á heimasíðunni www.fssf.is undir eyðublöð.
Með umsóknum þarf að fylgja húsaleigusamningur og staðfesting á námi barns. Athuga ber að sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára er samþykktur eina önn í senn, eða samkvæmt leigusamningi, og skila ber staðfestingu á áframhaldandi námi ungmennis við upphaf nýrrar annar.
Skila þarf umsóknum og fylgigögnum á skrifstofu félags- og skólaþjónustunnar að Klettsbúð 4, 360 Hellissandi eða á netfangið fssf@fssf.is / brynja@fssf.is
Nýjar umsóknir þurfa að berast til Félags- og skólaþjónustunnar eigi síðar en 20. þess mánaðar sem sótt er um. Greitt er frá þeim mánuði sem umsókn berst, ekki er greitt aftur í tímann.
FÉLAGS- OG SKÓLAÞJÓNUSTA SNÆFELLINGA