HMS  er að innleiða umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi, nú hefur HMS innleitt umsóknarviðmótið hjá 25% sveitarfélaga á landinu og áætlað er að búið verði að innleiða viðmótið hjá öllum byggingarfulltrúum 2027. HMS hefur fókuserað á þau sveitarfélög sem hafa ekki umsóknarlausn eða málaskrárkerfi.

HMS hefur tengt staðföng innan Eyja- og Miklaholtshrepps  við umsóknarviðmót stafrænna byggingarleyfa, hér er hlekkur: https://byggingarleyfi.hms.is/  

Umsókn kemur til sveitarfélags með tölvupósti. Starfsmaður sveitarfélags færir gögn yfir í málaskrá sveitarfélags. Forritun á umsýslukerfi fyrir sveitarfélög er hafin og mun  það vera kynnt um leið og hægt er fyrir þeim sveitarfélögum sem hafa birt hlekkinn.

Hér er hlekkur á upplýsingar um viðmótið https://hms.is/mannvirkjaskra/byggingarleyfi