Hreinsunardagar

Fyrra tímabil hreinsunardaga sveitarfélagsins er hafið. Gámar eru komnir í Laugargerði og að Holtsenda og munu verða þar til 6. júlí n.k. Á svæðunum eru gámar fyrir timbur, járn og almennt sorp, ásamt körum fyrir spilliefni. Vinsamlegast gangið vel um svæðin og látið vita ef að gámar eru að fyllast. Sigurbjörg Ottesen, oddviti

Hreinsunardagar

Hreinsunardagar sveitarfélagsins verða á tveimur tímabilum þetta sumarið. Fyrra tímabilið verður dagana 19. júní – 6. júlí og það síðara dagana 31. júlí – 16. ágúst. Gámar fyrir almennt sorp, timbur og járn verða staðsettir á Holtsenda og í Laugargerði, ásamt körum fyrir spilliefni. Sigurbjörg Ottesen, oddviti

Hreppsnefndarfundur 14. Júní 2026 að Breiðabliki

Hér með er boðað til fyrsta hreppsnefndarfundar í Eyja og Miklaholtshrepp eftir kosningar sunnudaginn 14. júní að Breiðabliki kl 20.00. Dagskrá.1. Kosning oddvita2. Kosning varaoddvita3. Skipað í nefndir og ráð sveitarfélagsins 4. Breiðablik, framkvæmdir:    Farið yfir teikningar     Farið yfir kostnaðaráætlun.    Undirritaður samningur við ÞB Borg kynntur5. Hreinsunardagar – sorpgámar í sveitarfélaginu […]