Sorpgámar

Ágætu íbúar. Þá er fyrra hreinsunarátaki hreppsins lokið og gámarnir verða fjarlægðir í dag. Langar mig að þakka öllum þeim sem að nýttu sér gámana fyrir góða umgengni við þá. 19. júlí 2022 Sigurbjörg Ottesen, oddviti

Hreppsnefndarfundur 14. júlí 2022

Hér með er boðað til hreppsnefndarfundar fimmtudaginn 14. júlí 2022 að Breiðabliki kl. 17:00 Dagskrá: Gjaldskrá mötuneytis Laugargerðisskóla Niðurstaða Mennta- og barnamáluráðuneytisins vegna meintrar ólöglegrar gjaldheimtu á fæðisgjöldum í mötuneyti Laugargerðisskóla, dagsett 10.6.2022. Leikskólamál. Eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands vegna félagsheimilisins á Breiðabliki, dagsett 12.7.2022. Skýrsla fyrir aðalskoðun á leiksvæði við Laugargerðisskóla, dagsett 1.7.2022. Skipun fulltrúa hreppsins […]

Netfangalisti og sorp

Ágætu íbúar, Undirrituð er að taka saman nýjan netfangalista svo koma megi tilkynningum og öðru sem að við á, til íbúa hreppsins og land- og sumarhúsaeigenda. Hvet ég ykkur til að senda tölvupóst á netfangið: oddviti@eyjaogmikla.is ef þið kjósið vera með ykkar netfang skráð á þann lista. Eins og þið hafið eflaust orðið vör við […]

Sorpgámar

Sorpgámar eru komnir á Holtsenda og við Núpá og munu verða þar til 18. þessa mánaðar. Um er að ræða sorpgáma undir timbur, járn og almennt sorp. Vinsamlegast gangið vel um svæðin og látið undirritaða vita ef að þörf er á losun á gámum. Gámarnir koma svo aftur 15.-29. ágúst og verður sett inn tilkynning […]