Styrkumsóknir

Hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps tekur á móti styrkumsóknum vegna íþrótta- og æskulýðsstarfs  og frá félagasamtökum innan hreppsins fyrir árið 2023. Umsóknir skulu sendar á netfang oddvita; oddviti@eyjaogmikla.is eigi síðar en 2. nóvember 2022 Hérna eru úthlutunarreglur.

Laus staða

Laust er til umsóknar starf stuðningsfulltrúa við Laugargerðisskóla. Um er að ræða 100% starf. Meginverkefni eru stuðningur við nemendur auk gæslu í hádegi og frímínútum. Nánari upplýsingar gefur Sigurður Jónsson skólastjóri í síma 8973605 Umsóknarfrestur er til 31.október og skal umsóknum ásamt ferilskrá skilað á netfangið skolastjori@laugargerdisskoli.isLaun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Fundargerð

Fundargerð síðasta hreppsnefndarfundar er komin inn hérna.

Fundarboð

Hér með er boðað til hreppsnefndarfundar miðvikudaginn 12. október 2022 að Breiðabliki kl. 20:00. Dagskrá: Hitaveita Eyja- og Miklaholtshrepps (HEM) Undirbúningur við gerð fjárhagsáætlunar 2023 Bréf Innviðaráðuneytis vegna kvörtunar/ábendingar um stjórnsýslu Eyja- og Miklaholtshrepps, dagsett 14. september 2022 Starf oddvita Kjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa Fundargerð 913. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga Fundargerð Fulltrúaráðsfundar FVA […]