Styrkumsóknir

Sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps tekur á móti styrkumsóknum vegna íþrótta- og æskulýðsstarfs og frá félagasamtökum fyrir árið 2026. Umsóknir skulu sendar á netfang oddvita; oddviti@eyjaogmikla.is eigi síðar en 10. nóvember 2025. Hérna eru úthlutunarreglur.     Bestu kveðjur, Sigurbjörg Ottesen Oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps Netfang: oddviti@eyjaogmikla.is Sími: 845-2723

Plastpressur

Eyja- og Miklaholtshreppur hyggst endurnýja búnað sveitarfélagsins sem notaður hefur verið til söfnunar á landbúnaðarplasti, en sveitarfélagið lagði á sínum tíma til gáma í þessu skyni. Nú er komið að endurnýjun gámanna og hefur sveitarfélagið skoðað aðrar lausnir sem eru hagkvæmari, umhverfisvænni, einkum í því skyni að minnka líkur á að plast fjúki úr gámum […]