Ég bý í sveit
Í næstu viku standa landshlutasamtökin SSV, SSNV og Fjórðungssamband Vestfirðinga sameiginlega að málþingi um leiðir til byggðafestu á sauðfjárræktarsvæðum. Hér að neðan eru slóðir á frétt SSV um málið ásamt slóð á Facebook viðburð málþingsins. https://www.facebook.com/events/1405637364331328
Styrkumsóknir
Sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps tekur á móti styrkumsóknum vegna íþrótta- og æskulýðsstarfs og frá félagasamtökum fyrir árið 2026. Umsóknir skulu sendar á netfang oddvita; oddviti@eyjaogmikla.is eigi síðar en 10. nóvember 2025. Hérna eru úthlutunarreglur. Bestu kveðjur, Sigurbjörg Ottesen Oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps Netfang: oddviti@eyjaogmikla.is Sími: 845-2723
Vistvangurinn Snæfellsnes
Plastpressur
Eyja- og Miklaholtshreppur hyggst endurnýja búnað sveitarfélagsins sem notaður hefur verið til söfnunar á landbúnaðarplasti, en sveitarfélagið lagði á sínum tíma til gáma í þessu skyni. Nú er komið að endurnýjun gámanna og hefur sveitarfélagið skoðað aðrar lausnir sem eru hagkvæmari, umhverfisvænni, einkum í því skyni að minnka líkur á að plast fjúki úr gámum […]
Snæfellsnes er fyrsti UNESCO vistvangurinn á Íslandi
Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) staðfesti í dag, laugardaginn 27. september 2025, umsókn Íslands um að gera Snæfellsnes að vistvangi. Er þetta fyrsta svæðið á Íslandi sem hlýtur þessa alþjóðlegu viðurkenningu. Hugtakið vistvangur er íslenskt nýyrði yfir hugtakið Biosphere Reserve, en þau svæði eru viðurkennd af MAB-áætlun UNESCO (Man and the Biosphere Programme).Vistvangur nýtir náttúru- og […]