Til bænda og búaliðs í Eyja- og Miklaholtshreppi
Bændareið 2014
Farið verður frá Borgarholti laugardaginn 19. júní, mæting kl. 13:30. Riðið verður að Krossum þar sem drukkið verður ketilkaffi að hætti Þorgríms Leifssonar, en hann með aðstoð góðra vætta ætlar að hella uppá. Þaðan verður riðið til baka, jafnvel fram í Stakkhamarsnes, allt eftir veðri og vindum.
Slegið verður upp veislu um kvöldið í Hrísdal kl. 20 þar sem boðið verður upp á mat eins og Rúnar Marvins og Gunni Palli geta einir gert í íslenskri sveit. Veigar verða í boði á meðan birgðir endast, en frjálst er að bera með sér brjóstbirtu á pela. Eftir matinn verður dansað inn í nóttina.
Gott væri að vita fyrir kl. 20 á sunnudag n.k. hve margir koma frá hverjum bæ svo að við getum áætlað í mat og drykk.
Myndina sem fylgir póstinum gerði Ragnheiður Þorgrímsdóttir og er hún einkennismyndin í ár.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja frá bændum í Borgarholti, Hrísdal, Miklaholti og Vegamótum.