Listinn Betri byggð bauð fram fyrst í síðustu kosningum og höfum við náð að gera margt fyrir okkar samfélag á kjörtímabilinu.
Vildum við halda því góða verki áfram og buðum því fram lista í kosningunum núna. Þar sem það er mikið af góðu fólki í samfélaginu vorum við að vonast eftir því að það kæmi annar listi fram.
Ef ekki kemur fram annað framboð í sveitarfélaginu fyrir tilskilinn tíma hefur listinn tekið þá ákvörðun að draga til baka framboð listans en þar með yrði persónukjör að nýju í Eyja- og Miklaholtshrepp.

F.h Betri byggðar Eggert Kjartansson Hofsstöðum